þankagangur :)
21.06.2008 13:08:47 / hafdis67

að vakna úr dvala

 

Nú er það spurning að vakna úr blogg dvala eða lát eyða þessari síðu. Ég ætla að sjá til, kanski blogga ég aðeins næstu daga og læt það duga eða dett hreinlega í gírinn. kv hafdis


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 10:06:56 / hafdis67

ímyndin er stundum aðeins skökk

Hjá lækninum     Guðrún fór í læknisskoðun á heilsugæslustöðina. Læknirinn byrjaði á að spyrja hversu þung hún væri og Guðrún sagðist vera 55 kg.Læknirinn lét hana þá stíga á vigtina sem sýndi 94 kg. Næst spurði læknirinn hversu há Guðrún væri. 168 cm svaraði hún.Læknirinn bað hana að standa upp við vegg og mældi hana með þar til gerðu málbandi. Niðurstaðan var 155 cm.Það var farið að fjúka í Guðrúnu.Því næst mældi  læknirinn  blóðþrýstinginn.Guðrún mín, sagði hann. Þú ert með allt of háan blóðþrýsting.Já ertu eitthvað hissa á því, hálfæpti Guðrún. Þegar ég kom hingað var ég há og grönn og núna er ég orðin lítil og feit

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 10:30:26 / hafdis67

afmæli

þetta set ég hér inn í tilefn á afmælinu mínu á dögunum

Konur yfir fertugt - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld...


Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar ástæður fyrir því:


Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa?"

Henni gæti ekki verið meira sama.


Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir
því.
Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en
leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við
þig í óperunni eða á fínum veitingastað.
Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að
þær komist upp með það.

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að
vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti
þína fyrir þeim.

Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40
langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért
asni ef þú hagar þér sem slíkur.
Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.


Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.


Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel
greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur,
vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára
gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.

Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur
fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna?


Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!


Andy Rooney
  


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 00:12:54 / hafdis67

brandari

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.
eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni 'góðan daginn væna mín' sagði hann 'hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?'  konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna 'Æ þakka þér fyrir væni minn' stundi í konunni 'Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp'
En þegar hún ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana 'Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af fimm þúsund köllum? varstu að ræna banka?'
Gamla konan brosti 'nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja '5000 kr. eða ég klippi hann af'
'jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd' sagði lögregluþjóninn hugsi '..en hvað ertu með í hinum pokanum?'

'Það eru ekki allir sem borga...'


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 21:44:07 / hafdis67

Yogi Tea

To learn, read. To know, write. To master, teach.

True understanding is found through compassion. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 08:56:11 / hafdis67

Yogi Tea

By honouring your Words you are honoured in this world.                                                 

The beat of your heart is the rhythm of your soul.

Hafið þið tekið eftir spekinni sem er á flipanum á Yogi te dúsunum. Það er þess virði að virða það fyrir sér ég ætla að setja hér inn það sem stendur á nokkrum flipum sem ég fæ;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 11:01:18 / hafdis67

sólinn

Ég má nú til með að deila með ykkur hvað ég er glöð að eiga heima á Akureyri. Það er janúar og sólin lýsir upp og baðar stofuna mína í sólargeislum hér dag eftir dag. Það var nú einu sinni þannig að þegar ég átti heima á Grenivík sá ég ekki sólina í janúar. Ef mig misminnir ekki þá sá maður ekki til sólu fyrr en miðjan febrúar. Dásamlegt að daginn er að lengja. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 16:02:44 / hafdis67

sunnudagur

Eru sunnudagar ekki notalegir?  Það finnst mér.

Ég er mikið búinn að hugsa um hvað ég er glöð að eiga þetta hjólhýsi sem við hjónin eigum.  Það gefur  mikið að hugsa til síðast liðna sumar og hugsa um möguleika næsta sumars. Ég er nú á því að maður eigi nú að dvelja í núinu en það er notalegt á sunnudegi í rólegheitum að láta hugann reika. Í dag reikar hann til vors og í vaglaskóg í hjólhýsið okkar fína.                       

Ég mala bara ;)  

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 01:43:25 / hafdis67

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár allir sem einn sem kíkið hér inn. ég og mínir rennum bara lúft inn í árið 2008 og er ég viss um að þetta ár verður ár framfara og þroska;). ég er búinn að fá inni í fjarnámi við vma í ensku og dönsku og verður spennandi að sjá hvernig það gengur. þið sem kvittið takk ynnilega fyrir það;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 18:06:42 / hafdis67

væntingar og vonbrigði

Það voru vonbrigði fyrir mig, sem fór með svo miklar væntingar á jólahlaðborð hjá Friðriki fimmta. Það var boðið upp á ,,sússí“ ég var ekki ánægð með það. Ég var ekki tilbúinn að smakka,, enda vill ég velja tíman sjálf þegar og ef mig langar að eta hráan fisk. Ég vil ekki gera það á jólahlaðborði. En þetta segir mér  ýmislegt um það sem ég hef  verið að velti mikið fyrir mér síðustu mánuði. Miklar væntingar bjóða upp á vonbrigði.  Þá er enn og aftur um að gera að stilla sig inn á að leggja ekki af stað með fullt veski af væntingum.  Ég tel afar mikilvægt að gera ekki mikið úr hlutunum og fara  svo af stað hvert svo sem ferðinni er heitið og taka atburðarásinni eins og hún er hver sem hún er eða verður. Taka fólki eins og það er, ekki ætla fólki að vera annað en það er, ekki setja fólk á stall því þá er fallið hátt, ekki byggja upp skýja borgir og væntingar. Taka bara glaður þátt í lífinu viðbúinn breyttri atburðarás. Ég tel að ég geti náð meiri gæðum í daginn ef það er jafnvægi á líðaninni. Það er ekki jafnvægi í væntingum og vonbrigðum. Einnig er ekki jafnvægi í því að ætla fólki að vera annað en það er.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 10:08:01 / hafdis67

svona á milli

:)

Nú er maður hættur að bíða, hátíðin liðin. Ég lít til baka þakklát fyrir daganna með mínu yndislega fólki. Bið um það að þið hafið átt ánægjulega daga líka. Nú er bara að hlakka til, kalkúnsins og félagsskapar um áramótin. En í millitíðinni ætlar maðurinn minn að bjóða mér út að borða á Friðrik fimmta, það verður skemmtilegt. Mig hefur nefnilega lengi langa að kíkja inn hjá karli, alveg síðan hann flutti á nía staðinn. Hafið það sem best þið sem kíkið hér inn. Ég óska ykkur gleðilergra áramóta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 15:52:20 / hafdis67

í hlaðið

Jeminn! eini einasti! hvað haldiðið nema að gráu hárunum fjölgar svo um munar þessa daganna, ef það er ekki ástæða að blogga um gráu hárin kvenær er þá ástæða til að blogga. Það þíðir bara það að ég er farinn í klippingu og STÝPUR ;). Er það ekki hjá ykkur eins og hjá mér að það er bara beðið eftir jólunum. Ég ætla neindar að gera tvennt skemmtilegt áður en jólin koma. Annað kvöld ætla ég að vera vitni af því þegar lítil stúlka fær nafn sem hún mun bera alla sína æfi, stór dagur það. Hún Bryndís mín verður tvítug fyrir jól. Þegar þeim áfanga er náð hjá stelpunni minni rennur Bessi í hlað með jólin í fanginu. Ég óska öllum þeim sem líta hér inn gleðilegrar jólahátíðar.  Jóla kveðja Hafdís

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 00:23:06 / hafdis67

afrek

Tími á smá blogg, virkilega skemmtileg tíma mót hjá mér í dag, nú er ég formlega orðin svæða og viðbragðsfræðingur. Krefjandi tímabili  lokið, áfanga náð sem ég lagði upp með í byrjun. Þegar ég ætlaði að segja skilið við skóla og krefjandi verkefni gat ég ekki hugsað mér að hætta. Ég mun sennilega halda áfram á sjúkraliðabraut en í fjarnámi fyrst til að byrja með. Hver veit nema að ég útskrifist sem sjúkraliði einn daginn. Það er ekkert lítið sem maður fær útúr að afreka svona.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 00:21:27 / hafdis67

lengi lifir í gömlum glæðum

ég gat ekki hugsað mér að hætta alveg í skólanum, ég sótti um ensku 103 og dönsku 103 í fjarnámi segi ykkur betur frá því síðar bara láta vita að ég er ekki alveg hætta að blogga kveðja Hafdís;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2007 08:31:42 / hafdis67

stúlka

:lol:Það fæddist lítil stelpa á FSA í morgunn kl 05:30 Hún var 16 merkur 53 cm með tíu fingur og tíu tær:lol:.  Innilega til hamingju krakkar mínir. Hún á auðvita  að heita :lol: Hafdís litla Hinriks er það ekki, nei bara grín hjá frænku gömlu;). Ég hlakka til að sjá ykkur öll.    

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9